Fara í efni
Barnamenningarhátíð
Dags Tími
18 .okt '20 16:00

Menningarhúsið Hof og Akureyrarbær bjóða á tónleika með íslenska hipp hopp tvíeykinu Jóa P og Króla sem allir krakkar þekkja.

Þrátt fyrir að vera ungir að árum má með sanni segja að JóiPé og Króli séu meðal allra vinsælustu tónlistarmanna landsins síðustu ára. Þeir hafa skorið sig úr fjöldanum með einlægum textum og gríðarlega kraftmikilli sviðsframkomu allt frá því þeir komu fyrst fram á sjónarsviðið árið 2017. Eftir þá liggja fjórar plötur en sú nýjasta ‘í miðjum kjarnorkuvetri’ kom út í apríl á þessu ári við frábærar undirtektir.

 

Enginn aðganseyrir – börn og ungmenni hjartanlega velkomin.

 

Hlökkum til að sjá þig.

 

Tónleikarnir eru í um það bil klukkustund.