Fara í efni
Dags Tími
02 .maí '19 20:00

Tinna Björg Traustadóttir heiðrar Britney Spears.


Flutt verða lög sem spanna 20 ára feril Britney og er engu til sparað til að gera tónleikana sem glæsilegasta.
Hljóð og ljós verða upp á sitt besta og Tinnu til stuðnings verður Akureyrska ábreiðubandið sem samanstendur af reyndum tónlistarmönnum af Norðurlandi, þeim Borgari Þórarinssyni, Knúti Emil Jónasyni, Stefáni Gunnarssyni og Trausta Ingólfssyni.


Tónleikarnir eru haldnir í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi fimmtudaginn 2. maí klukkan 20.00 og er aðgangur ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.

 

Viðburðurinn hlaut styrk frá listsjóðnum VERÐANDI