Fara í efni
Vinnusmiðjan er fyrir stelpur á aldrinum 12-16 ára, leiðbeinandi er Ásrún Magnúsdóttir, danshöfundur. Vinnusmiðjan er sprottin úr danssýningunni GRRRRRLS sem sló í gegn í Reykjavík síðasta vetur. Í sýningunni tók hópur unglingsstúlkna yfir sviðið og lét rödd sína heyrast og ljós sitt skína. Nú verður unnið með svipaðar aðferðir og voru notaðar í sýningunni. Þú þarft ekki að kunna að dansa, ekki að kunna að syngja, ekki kunna að leika, bara að vilja vinna með öðrum stelpum á svipuðum aldri sem búa á svipuðum stað og þú. Vinnusmiðjan er án endurgjalds og er hluti af Borgarasviði LA 2017-2018
Dags Tími
06 .okt '17 17:00
07 .okt '17
08 .okt '17
Vinnusmiðjan er fyrir stelpur á aldrinum 12-16 ára, leiðbeinandi er Ásrún Magnúsdóttir, danshöfundur.
Ekkert þáttökugjald.
 Vinnusmiðjan er sprottin úr danssýningunni GRRRRRLS sem sló í gegn í Reykjavík síðasta vetur. Í sýningunni tók hópur unglingsstúlkna yfir sviðið og lét rödd sína heyrast og ljós sitt skína. Nú verður unnið með svipaðar aðferðir og voru notaðar í sýningunni.
 
Í vinnusmiðjunni ætlum við að dansa saman, syngja saman, tala saman, hlusta á tónlist saman og bara hanga saman. Við ætlum að reyna að svara spurningum einsog; Hvað þýðir samstaða fyrir hóp af stelpum á Akureyri í dag? Hvað þýðir það fyrir þessar stelpur að hafa eina sameinaða rödd? Hvað vilja þær segja? Hvaða merkingu hefur það fyrir þær að standa saman? Hvað þýðir það fyrir þær að vera saman, að standa upp fyrir hvorri annarri, að vera ein fyrir alla - allar fyrir eina. Stelpunum verður gefið valdið þessa helgi og mega gera hvað sem þeim dettur í hug í samvinnu við hvor aðra og Ásrúnu. Við munum m.a. búa til dansa og texta og spila okkar uppáhalds tónlist. Vinnusmiðjan endar svo á stuttu stefnumóti við áhorfendur þar sem þeim gefst tækifæri á því að heyra og hitta stelpurnar og sjá afrakstur smiðjunnar.
 
Af því að við það að verða unglingar breytist margt, við fáum vandamál, við verðum elskaðar og svo verðum við elskaðar aftur af einhverjum öðrum. Við fáum að vita hluti um hluti sem þú munt aldrei fá að vita, af því við erum unglingsstelpur og það er ekki eitthvað sem hver sem er getur sagt. Það erum bara við sem erum unglingsstelpur sem vitum hvað það þýðir.
 
Þú þarft ekki að kunna að dansa, ekki að kunna að syngja, ekki kunna að leika, bara að vilja vinna með öðrum stelpum á svipuðum aldri sem búa á svipuðum stað og þú.
 
Dagskrá vinnusmiðju 
Föstudagur 6.október 17-20 Hof
Laugardagur 7. október 10-16 Hof
Sunnudagur 8.október 10-16 Samkomuhúsið
 
Vinnusmiðjan er án endurgjalds og er hluti af Borgarasviði LA 2017-2018
 
Skráning er hér á námskeiðið. Vinsamlegast athugið að námskeiðið takmarkast við 20 stúlkur. 
 
Ljósmyndari er Art Bicnick