Fara í efni
Dags Tími
08 .sep '17 08:00
09 .sep '17

Fundur fólksins er lífleg tveggja daga lýðræðishátíð haldin 8. og 9. september 2017 í Hofi Akureyri. Þar munu hin ýmsu félagasamtök, stjórnmálaflokkar og stofnanir vera með líflegar umræður tónlistaratriði og uppákomur.

Hversvegna
Hátíðinni er ætlað að virkja lýðræðisþátttöku almennings og vera vettvangur allra þeirra sem vilja ræða málefni samfélagsins. Fundur fólksins er vettvangur fyrir þátttöku, fræðslu og umræðu, suðupottur hugmynda þar sem alvöru fólk hlustar og ræðir saman í eigin persónu. Hátíðin er kjörið tækifæri til að standa fyrir málstofum, pallborðsumræðum, kynningum á ákveðnum málefnum, sýna sig og sjá aðra á þeim forsendum að það skiptir máli að raddir allra heyrast. Fundur fólksins er samtalsvettvangur þar sem markmiðið er að auka lýðræðisþátttöku og skapa meira traust og skilning milli ólíkra aðila samfélagsins án þess að vera föst í venjubundnum umræðufarvegi.

Utanumhald og skipulag
Aðstandendur Fundar fólksins 2017 er Menningarfélag Akureyrar ásamt Almannaheillum. Hátíðin er sjálfstæð og ekki tengd neinum hagsmunaöflum á Íslandi eða annars staðar. Velferðarráðuneytið styrkir hátíðina.

Markmið
Virkja lýðræðisþátttöku og efla rödd almennings.