Fara í efni
Dags Tími
16 .okt '17 12:00
17 .okt '17
18 .okt '17
19 .okt '17
20 .okt '17
21 .okt '17
22 .okt '17

 

Hádegisupplestur úr finnskum bókum

Mánudag - föstudags kl. 12.15

1862 Nordic Bistro

 

Mánud. 16. okt. kl. 12.15:  Vetrarundur í Múmíndal Pia Viinikka bókasafnsfræðingur les.

Þriðjud. 17. okt. kl. 12.15:  Pípuhattur galdrakarlsins Jón Páll Eyjólfsson leikhússtjóri les.  

Miðvikud. 18. okt. kl. 12.15:  Malarinn sem spangólaði Saga Geirdal Jónsdóttir leikkona les

Fimmtud. 19. okt. kl. 12.15:  Heimsins besti bær Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnastjóri les..

Föstud. 20. okt. kl. 12.15:   Dagur í Austurbotni Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri les.

 

Finnskt stuttmyndakvöld

í samvinnu við finnska sendiráðið

 

Miðvikudaginn 18. október kl. 20

Hamrar

 

Allar myndirnar eru með enskum texta

 

Do I have to take care of everything? (2011)

Tilnefnd til óskarsverðlauna í flokki stuttmynda 2012.

Sólríkur laugardagsmorgunn fer allur úr skorðum þegar fjölskyldan reynir að komast í brúðkaup í tæka tíð. Gjöfin týnist, föt krakkanna höfðu gleymst í þvottavélinni og engan lausan leigubíl er að finna. Móðurinni finnst hún þurfa að sjá um allt.

Leikstjóri: Selma Vilhunen.

Clumsy little acts of tenderness  (2012)

Faðir reynir að tengjast dóttur sinni eftir skilnað. Hann reynir sitt best en þungarokk og bílaþvottur virkar ekki. Á ögurstundu í lífi unglingsdótturinnar er hann reiðubúinn til að vera það foreldri sem hún þarf á að halda

Leikstjóri: Teemu Nikki.

Listen (2014)

Hér er gefin góð mynd af því hversuhjálparvana við getum verið ef við tölum ekki sama tungumál. Innflytjandi reynir að segja lögreglunni í Danmörku frá heimilisofbeldi en vegna tungumálaörðugleika skilur hún ekki alvarleika málsins.

Leikstjóri: Hamy Ramezan

Noste (2014)

Hér er farið með áhorfandann inn í ógleymanlegt ferðalag um dansveröld neðansjávar. Þessi kröftuga og fallega sýning vekur upp tilfinningar með litum, fljótandi hreyfingum og undraverðum hæfileikum mannslíkamans.

Leikstjóri: Marko Röhr

 

BAR SVAR um Finnland og finnska menningu

Föstudagur 20.okt. KL 19:30-21:30

R5

Spurningarkeppni í samvinnu við Norræna  Félagið á Akureyri. Tilboð á bjór og ýmsir skemmtilegir vinningar. Hvað veist þú um Finnland?

 

Sögu- og föndurstund fyrir börn

í samstarfi við Amtsbókasafnið

Laugardagur kl. 11 -12

Hamragil

Lesið verður uppúr finnskri barnabók á íslensku, örstutt á finnsku og sænsku, kennt að telja uppá 10 á finnsku og að lokum föndrað.

 

Finnskir tónar á 1862 Nordic Bistro og NÖNNU

 

Laugardagur 21.okt kl 20 á NÖNNU

Sunnudagur 22 okt kl 12-13 á 1862 Nordic Bistro

 

Matti Kallio flytur finnska tónlist á 1862 Nordic Bistro og NÖNNU þar sem finnskt þema verður í fyrirrúmi á matseðlum.

 

TÓNLEIKAKYNNING

Saga lýðræðisbaráttu Finnlands og tónlistar Sibeliusar

Sunnudagur 22.okt. kl 15

Naust

Sendiherra Finnlands Valtteri Hirvonen  fjallar um sögu lýðræðisbaráttunnar og tengsl hennar við verk Sibeliusar í tilefni af aldarafmæli þess. Sérstakur gestur verður Matti Kallio tónlistarmaður.

Boðið verður upp á léttar veitingar með finnsku ívafi.

 

Kista hönnunarverslun

Kynning og tilboð á finnskum vörum alla vikuna.

 

Hápunktur finnsku vikunnar

FINLANDIA OG FRÓN

sunnudagur 22.okt. kl 16

Peter Sakari stjórnar flutningi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á verkum Síbelíusar og Áskels Mássonar á stórtónleikum. Enn eina ferðina frumflytur hljómsveitin nýtt íslenskt verk en það er slagverkskonsertinn Capriccio eftir Áskel Másson.

 

Allir viðburðir finnsku vikunnar eru án endurgjalds nema tónleikarnir Finlandia og Frón.

Velkomin