Fara í efni
Dags Tími
17 .ágú '17 20:00

Ella Fitzgerald á sérstakan stað í hjörtum margra enda er hún ein ástsælasta söngkona sem uppi hefur verið.

Þessi drottning djasstónlistarinnar hefði orðið 100 ára þann 25. apríl síðastliðinn og af því tilefni ætla söngkonan Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir ásamt Helgu Kvam píanóleikara, Stefáni Ingólfssyni bassaleikara og Rodrigo Lopes slagverksleikara að heiðra minningu þessarar einstöku konu með tali og tónum. 

 

Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Listasumar og Menningarfélag Akureyrar.