Fara í efni
Dags Tími
24 .mar '19 16:00

Hátíðartónleikar í Hofi í tilefni að 25 ára afmæli Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og formlegrar opnunar kvikmyndatónlistarverkefnisins SinfoniaNord. Sérstakur gestur er Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningaramálaráðherra. 

 

 Sýningaskrá hér

 

24. MARS Í HOFI

ATLI ÖRVARSSON – DVOŘÁK – RIMSKY-KORSAKOV                                  

Tvö mögnuð meistaraverk og frumflutningur á norðlenskri nýsköpun á 25 ára afmælistónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

Frumflutt verður nýtt verk eftir eitt af höfuðtónskáldum Akureyringa, Atla Örvarsson. Verkið er sérstaklega samið vegna þessara tímamóta. Þá verður flutt hið dulúðlega stórvirki Scheherazade eftir Rimsky-Korsakov af stórri hátíðarhljómsveit SN. Verkið er svo sannarlega seiðmagnað enda unnið upp úr sögunum úr þúsund og einni nótt.

Guðmundur Óli Gunnarsson hljómsveitarstjóri og dóttir hans, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari, munu flytja saman ásamt hljómsveitinni einn fallegasta sellókonsert sögunnar, sellókonsert nr. 2 eftir Dvorák.  

Guðmundur Óli Gunnarsson hljómsveitarstjóri vann mikilvægt starf fyrir Norðurland í ein 23 ár sem aðalhljómsveitarstjóri SN og dóttir hans, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari, steig sín fyrstu skref í Tónlistarskólanum á Akureyri og lék með SN og föður sínum á fjölmörgum tónleikum. Nú heimsækja þau Akureyri á ný, staðinn sem hafði mikil áhrif á listfengi þeirra, og leggja sitt af mörkum til að gera þessa hátíðlegu stund eftirminnilega í hugum áheyrenda.

 

Höfundar: Antonín Dvorák, Atli Örvarsson og Nikolai Rimsky-Korsakov 

Einleikari: Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir 

Hljómsveitarstjóri: Guðmundur Óli Gunnarsson