Fara í efni

Skráningareyðublað - Barnamorgun 15.03.2020

15. MARS KL. 11:00| MENNINGARHÚSIÐ Hof

LEYNDARDÓMAR JAFNVÆGISLISTANA

Barnamorgun Menningarfélags Akureyrar

 

Menningarfélag Akureyrar og Húlladúllan bjóða börnum á aldrinum 8-12 ára að spreyta sig á sirkuslistum. Þemað í þetta skiptið eru leyndardómar jafnvægislistanna. Við munum að halda jafnvægi á bæði töfrafjöðrum og kínverskum snúningsdiskum og svo allskonar óhefðbundnum áhöldum. Við munum líka láta reyna á okkar eigið jafnvægi á veltibrettum. 

Húlladúllan er Unnur María Máney Bergsveinsdóttir. Hún er sjálfstætt starfandi sirkuslistakona, búsett á Ólafsfirði. Hún hefur starfað með Sirkus Íslands og breska sirkusnum Let’s Circus og hefur komið fram á ýmsum sirkussýningum í Frakklandi, Bretlandi og í Mexíkó. Hún elskar að kenna bæði börnum og fullorðnum allskonar skemmtilegar sirkuslistir.

Þáttaka í smiðjunni er þáttakendum að kostnaðarlausu en athugið að það er nauðsynlegt að skrá sig til leiks.

Pláss er fyrir 30 börn á aldrinum 8 - 12 ára á viðburðinum.

Norðurorka er styrktaraðili Barnamorgna Menningarfélags Akureyrar.

 

 

Vinsamlegast skráið fullt nafn þátttakanda
Vinsamlegast skráið fullt nafn forráðamans
captcha