Fara í efni
Dags Tími
02 .jún '16 20:00

Á þessu vori ætla félagar í Karlakór Akureyrar-Geysi að leiða gesti í skemmtilegt ferðalag um tónlistarsöguna. Á efnisskránni eru lög úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum. Kraftmikil kórlög, ljúfur ljóðasöngur og dásamleg dægurlög. Eflaust má heyra einhverja ítalska tóna, en KAG-félagar halda til Ítalíu seinna í júnímánuði.

Einsöngvarar:
Jónas Þór Jónasson
Arnar Árnason
Georgio Baruchello

KAG-kvartettinn

Stjórnandi Karlakórs Akureyrar-Geysis er Hjörleifur Örn Jónsson