Menningarfélag Akureyrar (MAk) hefur sett saman metnaðarfulla menningardagskrá fyrir sumarið. Gert er ráð fyrir uppákomum nær alla daga í sumar og fara þær fram í Menningarhúsinu Hofi klukkan 14 og 20 á daginn. Dagskráin ber yfirskriftina Menningarsumarið í Hofi eða Summer Events in Hof og er í senn ætluð heimamönnum sem erlendu og innlendu ferðafólki.
Söngleikir, kvikmyndir og íslenskt í bland
Þór Breiðfjörð er leikari, söngvari og lagasmiður með farsælan feril að baki í Evrópu og á Íslandi. Hann hefur gefið út tvær sólóplötur, aðra frumsamda og hina með 18 manna stórsveit ásamt því að hafa vakið mikla athygli fyrir söng inn sem Jean Valjean í Vesalingunum 2012 og nú síðast sem Júdas í Súperstar í Hörpu og Hofi 2015. Hann vann Grímuna 2012 fyrir Vesalingana.
Valgerður Guðnadóttir er landsmönnum vel kunn bæði á tónleikum og leiksviði, allt frá söngleikjum til óperu. Hún sló ung í gegn í Þjóðleikhúsinu í West Side Story og síðar sem María í Söngvaseið; fyrir það hlaut hún Grímuna 2009. Hún hefur farið með fjölda annarra hlutverka, t.d. Fantine í Vesalingunum, Papagenu í Töfraflautunni ásamt því að vera rödd Pocahontas og litlu Hafmeyjunnar.
Meðleikari á píanó er Vignir Þór Stefánsson.
Tónleikarnir fara fram í Hömrum tónleikasal í Hofi og 1862 Nordic Bistro verður með opið bæði í mat og drykk á meðan á tónleikum stendur.