Fara í efni
Dags Tími
27 .maí '17 20:00

Laugardagur 27. maí
Vaka 2017 - Rúsínan í pylsuendanum
Tími:kl. 20:00 - 23:30
Miðaverð kr. 2.800 *
Hamrar, Menningarhúsinu Hofi

Á glæsilegum kveðjutónleikum Vöku, laugardaginn 27. maí, er síðasta tækifærið til að sjá og heyra frábæra tónlistarmenn Vöku frá Skotlandi, Englandi, Írlandi, Svíþjóð, Noregi, danmörku, Eistlandi og Íslandi.

Ekki missa af Vöku 2017!

Öllum kvöldtónleikum Vöku líkur á samspilsstund á 1862 Nordic Bistro; þangað eru allir velkomnir hvort sem þeir vilja spila eða syngja með, eða bara hlusta.

---------------------------------------------

Vaka 2017 - tónleikar - námskeið - málþing - hádegissamspil

Þjóðlistahátíðin Vaka á Akureyri verður í Menningarhúsinu Hofi, frá miðvikudagskvöldi til laugardagskvölds. ÁVöku verða 7 tónleikar þar sem gefst einstakt tækifæri til að kynnast hefðbundinni tónlist frá Íslandi, Írlandi, Englandi, Skotlandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Eistlandi. Þar má sjá og heyra frábæra tónlistarmenn spila á fiðlu, sello, langspil, harmoniku, írskar flautur, írskar sekkjapipur, klarinett, banjo og hurdy-gurdy. Einnig koma fram á Vöku kvæðamenn víðsvegar að af landinu og sungnir verða tvísöngvar, stemmur og ensk, írsk, skosk, íslensk, sænsk og norsk þjóðlög. 

Í hádeginu fimmtudag, föstudag og laugardag er Hádegissamspil þar sem tónlistarmenn Vöku koma saman á 1862 Nordic Bistro til að spila hver með öðrum eða "jamma" eins og það er kallað. Þangað eru allir velkomnir hvort sem þeir vilja bara horfa á eða koma með hljóðfæri sitt og spila með.

Viljirðu fara á fleiri tónleika á Þjóðlistahátíðinni Vöku getur þú keypt þér hátíðarkort semveitir aðgang að öllum tónleikum Vöku og 50% aflsátt af námskeiðum.

  • Tónar og tal, 25. og 26. maíkl. 17:00 eru stuttir og persónulegir tónleikar þar sem tónlistarmenn hátíðarinnar sitja fyrir svörum og áhorfendur fá tækifæri til að fræðast um tónlist þeirra og hljóðfærin.
  • Kvöldtónleikar, 24., 25., 26. og 27. maíkl. 20:00 eru tónleikar í fullri lengd þar sem fram koma tónlistarmenn og dansarar Vöku.
  • Kvæðamannatónleikarnir verða kl. 14:00 laugardaginn 27. maí. Þar verða Disneyrímur eftir Þórarinn Eldjárn frumfluttar í heild sinni af kvæðamönnum víðsvegar að af landinu á skemmtilegan og persónulegan hátt.

Hátíðarkort Vöku, kr. 9.800 * getur þú keypt á www.mak.is

Nánari upplýsingar á www.vakafolk.is

-------------------------------------------------------------

* 20% afsláttur er veittur fyrir eldri borgara, nemendur, atvinnuleitendur og öryrkja. Aflsáttarmiða er einungis hægt að kaupa í miðasölunni í Hofs gegn framvísun viðeigandi skilríkja.