Fara í efni
Dags Tími
27 .maí '17 14:00

Laugardagur, 27. maí
Vaka 2017 - Disneyrímur
Tími: kl. 14:00 - 16:00
Miðaverð kr. 2.800 *
Stofa 357, 3. hæð, Menningarhúsinu Hofi

Einn er sá viðburður sem er alveg sér á parti, en það er frumflutningur á Disneyrímum í heild sinni eftir Þórarinn Eldjárn. Þar sameinast kvæðamenn víðsvegar að af landinu um að kveða þessa skemmtilegu rímu á persónulegan hátt.

Sú var tíðin að rímnakveðskapur var landans besta skemmtun; Vaka vill viðhalda þessari aldagömlu tónlistarhefð okkar íslendinga og leggja sitt af mörkum til þess að hún megi þróast og dafna á komandi árum og öldum.

---------------------------------------------

Vaka 2017 - tónleikar - námskeið - málþing - hádegissamspil

Þjóðlistahátíðin Vaka á Akureyri verður í Menningarhúsinu Hofi, frá miðvikudagskvöldi til laugardagskvölds. ÁVöku verða 7 tónleikar þar sem gefst einstakt tækifæri til að kynnast hefðbundinni tónlist frá Íslandi, Írlandi, Englandi, Skotlandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Eistlandi. Þar má sjá og heyra frábæra tónlistarmenn spila á fiðlu, sello, langspil, harmoniku, írskar flautur, írskar sekkjapipur, klarinett, banjo og hurdy-gurdy. Einnig koma fram á Vöku kvæðamenn víðsvegar að af landinu og sungnir verða tvísöngvar, stemmur og ensk, írsk, skosk, íslensk, sænsk og norsk þjóðlög. 

Viljirðu fara á fleiri tónleika á Þjóðlistahátíðinni Vöku getur þú keypt þér hátíðarkort semveitir aðgang að öllum tónleikum Vöku og 50% aflsátt af námskeiðum.

  • Tónar og tal, 25. og 26. maíkl. 17:00 eru stuttir og persónulegir tónleikar þar sem tónlistarmenn hátíðarinnar sitja fyrir svörum og áhorfendur fá tækifæri til að fræðast um tónlist þeirra og hljóðfærin.
  • Kvöldtónleikar, 24., 25., 26. og 27. maíkl. 20:00 eru tónleikar í fullri lengd þar sem fram koma tónlistarmenn og dansarar Vöku.
  • Kvæðamannatónleikarnir verða kl. 14:00 laugardaginn 27. maí. Þar verða Disneyrímur eftir Þórarinn Eldjárn frumfluttar í heild sinni af kvæðamönnum víðsvegar að af landinu á skemmtilegan og persónulegan hátt.

Hátíðarkort Vöku, kr. 9.800 * getur þú keypt á www.mak.is

Nánari upplýsingar á www.vakafolk.is

-------------------------------------------------------------

* 20% afsláttur er veittur fyrir eldri borgara, nemendur, atvinnuleitendur og öryrkja. Aflsáttarmiða er einungis hægt að kaupa í miðasölunni í Hofs gegn framvísun viðeigandi skilríkja.