Fara í efni
Todmobile flytur TODMOBILE(1990) sína langvinsælustu plötu frá upphafi.
Dags Tími
10 .okt '15 20:00
Verð: 7990

Nú er komið að “back to basics” rokk og ról tónleikum Todmobile. Engin kammersveit, enginn kór og enginn erlendur gestur heldur hyggst sveitin skarta sínu fegursta upp á gamla mátann og flytja samnefnda plötu sína, meistaraverkið “Todmobile” í heild. Þessi plata fagnar einmitt 25 ára afmæli í ár en hún var nýverið valin ein af 100 bestu plötum Íslandssögunnar í samnefndri bók. Það skal engan undra enda inniheldur þessi eðalgripur alþekkt lög á borð við Pöddulagið, Eldlagið, Spiladósalagið, Brúðkaupslagið, Gúggúlu, Draumalagið, Næturlagið og fleiri ópusa sem Todmobile hefur að mestu haldið tryggð við á tónleikaprógrammi sínu í gegnum árin. Til viðbótar telja þau Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Eiður Arnarsson, Kjartan Valdemarsson, Ólafur Hólm og Alma Rut í allar hinar helstu perlurnar frá upphafi ferilsins til dagsins í dag.

Tónleikarnir fara fram laugardaginn 10. otóber kl 20 í Hofi Akureyri.