Fara í efni
Dags Tími
21 .des '16 20:30

Í ár bregður Bubbi ekki út af vananum og heldur því  þorláksmessutónleika víðsvegar um landið en þó er breyting þar á þar sem hann bætir við tveimur viðkomustöðum þetta árið.  Ástæðan er sú að þetta er stórafmælisár hjá Bubba en hann varð sextugur 06.06.16 og var haldin heljarinnar tónlistarveisla í Hörpu i tilefni þess.  Fáar hefðir í tónlist hafa orðið jafn lífseigar og þorláksmessutónleikarnir hans Bubba og eru þeir orðnir fastur liður í undirbúningi jólanna hjá fjölda fólks.  Margir koma á tónleikana og enn fleiri hlusta á útsendingu Bylgjunnar heimafyrir eða í bílnum þegar verið er að ganga frá síðustu gjöfunum.  Eitt er víst að fyrir marga myndi vanta mikið í jólahaldið ef ekki væru þorláksmessutónleikar Bubba Morthens.

Líkt og undanfarin ár verður Bubbi í hinu frábæra Menningarhúsi Norðlendinga, Hofi, miðviukdagskvöldið 21. desember.