Fara í efni
Sýning fyrir hláturbelgi, virka í athugasemdum og helstu hugsuði landsins
Dags Tími
22 .okt '15 20:00
23 .okt '15
24 .okt '15
25 .okt '15
26 .okt '15
27 .okt '15
28 .okt '15
29 .okt '15
30 .okt '15
31 .okt '15
01 .nóv '15
02 .nóv '15
03 .nóv '15
04 .nóv '15
05 .nóv '15
06 .nóv '15
07 .nóv '15
08 .nóv '15
09 .nóv '15
10 .nóv '15
11 .nóv '15
12 .nóv '15
13 .nóv '15
14 .nóv '15
15 .nóv '15
16 .nóv '15
17 .nóv '15
18 .nóv '15
19 .nóv '15
20 .nóv '15
21 .nóv '15
22 .nóv '15
23 .nóv '15
24 .nóv '15
25 .nóv '15
26 .nóv '15
Verð: 4900

Hommi, múslimi og feministi koma gangandi inn á bar... 

Saga og Dóri eru uppistandarar og þau eru líka kærustupar. Þau elskast, rífast, semja brandara og eru ósammála um hvort betra sé að fara til New York eða á Hornstrandir til að rækta sambandið. Dóri og Saga eru kaldhæðin, upptekin af sjálfum sér og of mikið á netinu. Það er ekkert grín að vera einstaklingur í sjálfhverfu sambandi og í samkeppni við einu manneskjuna sem skilur mann. Það eina sem þau óttast er að segja óviðeigandi brandara og verða fyrir vikið jörðuð á öllum miðlum. En hvað er óviðeigandi brandari? Er grín ekki alltaf leikur á línunni? Og hversu óviðeigandi þarf mjög fyndinn brandari að vera til að maður sleppi honum? Er grín einhvern tímann ókeypis? Meira að segja fimm aura brandarar hafa verðmiða og hvað kostaði þá Grínverjinn?

Sýningin hefur verið sýnd fyrir fullu húsi í Hofi á Akureyri í haust og hefur hún hlotið einróma lof gagnrýnenda og áhorfenda. 

 

"Drepfyndin sýning"  - Skapti Hallgrímsson – Mbl

 "Gott verk og öllum aðstandendum þess til sóma" – Ágúst Þór Árnason Vikudagur

"í leikhúsinu verður hláturinn oft dálítið sakbitinn, í því felst snilld þessarar sýningar." - Björn Þorláksson – hringbraut.is

 "Í stuttu máli þá fannst mér þetta stórkostleg sýning." - Hilda Jana Gísladóttir – N4

 „Mjög vel heppnað. Ég skemmti mér mjög vel og það var alveg augljóst að áhorfendur skemmtu sér mjög vel,“ - Hlín Agnarsdóttir - Kastljós

 

Þetta er grín, án djóks er 316. sviðsetning Leikfélags Akureyrar og er sett upp í samstarfi við Menningarhúsið Hof.

 

Höfundar: Halldór Laxness Halldórsson og Saga Garðarsdóttir

Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson

Tónlist: Snorri Helgason

Leikmynd og búningar: Magnea Guðmundsdóttir

Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson

Dramatúrgía: Halldór Laxness Halldórsson, Jón Páll Eyjólfsson og Saga Garðarsdóttir

Starfsnemi á Leiklistarsviði: Hekla Aðalsteinsdóttir

Listræn ráðgjöf: Dóra Jóhannsdóttir, Mið Ísland

Leikarar: Halldór Laxness Halldórsson, Saga Garðarsdóttir og Benedikt Karl Gröndal

Hljóðmynd: Einar Karl Valmundsson

Sýningarstjórn: Þórunn Geirsdóttir og Jón Birkir Lúðvíksson

Tæknimaður: Þóroddur Ingvarsson

Ljósmyndir: Auðunn Níelsson

Hönnun: Arnar Tyggvasson

Aðstoð við búninga: Kristín Sigvaldadóttir

Leikmyndasmíði og málun:     Magnús Viðar Arnarson, Bjarki Árnasson, Lárus Heiðar Sveinsson,  B.Hreiðarsson ehf

 Eftirfarandi lög eru flutt í sýningunni

Grínverji

Lag: Gunnar Þórðarson

Útsetning: Snorri Helgason

 

Jón Spæjó

Lag: Gunnar Þórðarson

Útsetningar: Snorri Helgason

 

Yfir Til Þín

Lag: Karl Ágúst Úlfsson

Útsetningar: Snorri Helgason

 

Fóstbræðrastef

Lag: Sigurjón Kjartansson

Útsetning: Snorri Helgason

 

Tilbrigði við barúmtiss:

Lag: Magnús Trygvasen Eliassen & Snorri Helgason

 

Yakety Sax

Lag: Spider Rich & Boots Randolph

Útsetning: Snorri Helgason, Örn Eldjárn & Magnús Trygvasen Eliassen.

Stjórn upptöku: Gunnar Örn Tynes

Hljóðfæraleikur: Snorri Helgason, Örn Eldjárn & Magnús Trygvasen Eliassen

Tónlistarsjórn: Snorri Helgason