Fara í efni
Dags Tími
18 .maí '17 20:00

Þann 18. maí kemur Skuggatríó Sigurðar Flosasonar fram á SumarJAZZ í Hofi. Tríóið spilar blúsmengaðan jazz og jazzskemmdan blús. Skemmtileg, aðgengileg tónlist þar sem fílingurinn er fyrirrúmi og bítið ræður ríkjum. Kynningar verða á mörkum hins siðlega og endapunkturinn er ófyrirsjáanlegur. 

Tríóið skipa Sigurður Flosason saxófónleikari, Þórir Baldursson á hammond orgel og Jóhann Hjörleifsson trommuleikari. Sérstakur gestur verður Magni Ásgeirsson söngvari. 

 

SumarJAZZ tónleikaröðin í Hofi er samstarf Menningarfélags Akureyrar og 1862 Nordic Bistro.