Fara í efni
Dags Tími
10 .okt '15 10:00

Ert þú sá/sú sem við leitum að?

 

Menningarfélag Akureyrar leitar að fjórum ungmennum á aldrinum 14-19 ára til að leika í stærstu sýningu vetrarins, Pílu Pínu.

 

Við erum að leita að ungmennum sem hafa unun af því að koma fram, ungmennum sem eru jákvæð, metnaðarfull og dugleg. Það er heldur ekkert verra ef þú getur sungið eða dansað en það er ekki skilyrði.

 

Ef þú heldur að þú sért rétta manneskjan í starfið bjóðum við þér að koma á leiklistarnámskeið MAk, þar kynnumst við þér betur og tökum í kjölfarið ákvörðun um ráðningu. Námskeiðið fer fram þann 10. október frá kl.10.00-15.00.

 

Skráning á námskeiðið fer fram á hér en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir klukkan 17.00 föstudaginn 9. október.

 

Við hlökkum til að leika með þér í vetur. 

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið og sækja þannig um að fá að taka þátt í uppsetningunni á Pílu Pínu.