Fara í efni
Norðurljósin loga 12. desember í Hofi
Dags Tími
12 .des '15 19:00
Verð: 5990

 

Á þessum skemmtilegu og hátíðlegu jólatónleikum mun einvalalið norðlenskra listamanna, ásamt góðum gestum að sunnan, flytja nokkur af uppáhalds jólalögum þjóðarinnar. Helga Möller, Óskar Pétursson, Stefán Jakobsson, Magni Ásgeirsson og Sigríður Thorlacius koma þér í rétta jólaskapið. Einnig kemur fram kammerkórinn Ísold undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þorsteinsdóttur.  Í fyrra seldist upp á þrenna tónleika og komust færri að en vildu.

 

Hljómsveit Norðurljósa skipa:

Arnar Tryggvason: Hljómborð

Haukur Pálmason: Trommur

Magni Ásgeirsson: Gítar

Pétur Hallgrímsson: Gítar

Sumarliði Helgason: Bassi

Valmar Valjaots: Píanó

Valgarður Óli Ómarsson: Slagverk