Fara í efni
Dags Tími
28 .jan '17 20:00

Stjarnfræðilega fyndin sýning uppfull af spandexi, ódýrum tæknibrellum og einu lagi

 

„Hverjum vilt þú hleypa inn?“

 

Jörðin er að deyja. Til að bjarga mannkyninu eru bókvitru en treg-gáfuðu spandex-geimfararnir Ísak og Vilhjálmur sendir í könnunarleiðangur til KOI. Þar á að byggja mannkyninu nýtt heimili, nýja framtíð. En á leiðinni er bankað og einhver í neyð vill komast inn í geimskipið...

 

Könnunarleiðangur til Koi er annar hluti þríleiksins um Ísak og Vilhjálm þar sem leikhúsið fæst við málefni líðandi stundar með hárbeittri kaldhæðni og miskunnarlausri sjálfs-gagnrýni. Með húmorinn að vopni spyrja geimfararnir allra óþægilegu spurninganna, spegla viðbrögð okkar og skella viðhorfum samfélagsins í öllum sínum hráleika beint á sviðið.

 

Í fyrsta hluta þríleiksins, MP5, var byssumálið margrædda krufið, þegar vopnvæða átti lögreglulið landsins með stórvirkum vélbyssum. Í Könnunarleiðangri til KOI skoða meðlimir Sóma þjóðar hinsvegar flóttamannavandann, hvernig við tökum á honum, eða öllu heldur sleppum því að taka á honum. Við hvað erum við hrædd? Og höfum bara ekki fullan rétt á að vera hrædd?

 

KOI hlaut frábærar viðtökur er hún var frumsýnd í Tjarnarbíói og var meðal annars tilnefnd til Grímuverðlauna. Unnið er eftir vinnuaðferðum sem hópurinn hefur mótað um árabil og felst í útilokun á ritskoðum og heiðarlegum hráleika. Útkoman er afar kómískt en áleitið leikhús sem á erindi við alla.

 

Listrænir stjórnendur eru Tryggvi Gunnarsson og Hilmir Jensson, en þeir eru handrits- og leikmyndahöfundar, leikstjórar, og leikarar sýningarinnar

Aldurshópur 12+  sýningin er  70 mínútur að lengd, ekkert hlé.