Fara í efni
Dags Tími
04 .ágú '16 20:00

Fiðlusmellir og klassískar söngperlur með þeim Láru Sóleyju, Hjalta og Daníel verða í Hömrum 4. ágúst kl. 20.

Lára Sóley var bæjarlistamaður Akureyrar 2015. Hún þakkaði fyrir sig með eftirminnilegum tónleikum fyrir fulli húsi í Akureyrarkirkju í vor. Daníel Þorsteinsson píanisti er sterkt afl í Íslenskri tónlist og hefur m.a. stjórnað  Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Hjalti Jónsson er söngmaður mikill og flinkur gítarleikari.  Á þessum tónleikum mun tríóið flytja léttar klassískar perlur.