Jeff Herr, einn flottasti trommari Lúxemborgar, heimsækir Hof á Akureyrarvöku. Með í för verða þeir Sigurður Flosason sem spilar á altó saxófón, Kjartan Valdemarsson sem leikur á píanó, Þorgrímur Jónsson sem spilar á kontrabassa og Jeff Herr sjálfur á trommur.
Tilvalið að koma og eiga góða sunnudagsstund í Hofi, fá sér brunch á 1862 Nordic Bistro og hlusta á Jeff Herr kvartett.