Fara í efni
Ógnvænlegasta tröllkerling Íslendinga á barmi taugaáfalls
Dags Tími
29 .nóv '15 14:00
30 .nóv '15
01 .des '15
02 .des '15
03 .des '15
04 .des '15
05 .des '15
06 .des '15
07 .des '15
08 .des '15
09 .des '15
10 .des '15
11 .des '15
12 .des '15
13 .des '15
14 .des '15
15 .des '15
16 .des '15
17 .des '15
18 .des '15
19 .des '15
20 .des '15
Verð: 2900

Börn undir sex ára aldri eru á eigin ábyrgð Grýla gæti verið svöng. 

 
Grýla er ekki í góðu skapi. Hún er heimilislaus. Það er búið að bora gat í gegnum heimilið hennar og allt er á floti. Nú þarf hún að finna sér nýja íbúð, helst með heitum potti og gæludýr verða að vera leyfð. Hún segist vera löngu hætt að borða börn og að það eigi allt sér sínar útskýringar. En Lögreglan á Akureyri vill ekki leyfa henni að flytja í bæinn, nema krakkarnir samþykki það. Því hefur Grýla boðað börnin í bænum á íbúafund í Samkomuhúsinu. 
 
Jólasveinarnir og hinir krakkarnir eru öll flutt að heiman. Jólakötturinn harðneitar að hafa nokkurntíma borðað börn. Leppalúði er bakveikur og Grýla er búinn að æfa sig á gítarinn. Komdu og upplifðu ævintýraheim Grýlu, sem er sprenghlægilegur og stórhættulegur í senn.
 
Grýla er 317. sviðsetning Leikfélags Akureyrar 

Aðalhlutverk: Saga Garðarsdóttir
Leikstjóri: Gunnar Gunnsteinsson 
 

 

Höfundar: Dóri DNA og Gunnar Gunnsteinsson
Leikstjóri: Gunnar Gunnsteinsson
Leikmynd og búningar: Íris Eggertsdóttir 
Lýsing: Lárus Heiðar Sveinsson
Förðun og gervi: Heiðdís Austfjörð og Anna Sigrún Auðunsdóttir
Leikari: Saga Garðarsdóttir

Sýningin er ætluð manneskjum, 6 ára og eldri