Fara í efni
Dags Tími
04 .nóv '16 12:00

Föstudagsfreistingar eru hádegistónleikaröð Tónlistarfélags Akureyrar. Að þessu sinni kemur fram Dúó Stemma, sveitina skipa Herdís Jónsdóttir og Steef van Oosterhoot.

 

Efnisskráin samanstendur af íslenskum þjóðlögum, þulum og vísum. Sumt hefur verið útsett fyrir þau og annað hafa þau sjálf gert. Þau leika á víólu, marimbu, íslenskt steinaspil, alls konar hefðbundin og heimatilbúin hljóðfæri og skapa skemmtilega stemningu í tali, tónum og hljóðum.