Fara í efni
Dags Tími
11 .nóv '16 20:00
12 .nóv '16

Skemmtilegt heimildarverk sem vermir manni um hjartarætur.

 

"Það var nú ekki spáð vel fyrir mér, að flytja þessa frú hér norður í land. Hún myndi nú fara um leið og fyrstu snjókornin kæmu, eins og álftirnar."

 

Ástarsögur dynja á okkur – endalaust; ýmist óendurgoldnar ástir eða skammlífar. Flestar eiga þær það sameiginlegt að enda ekki vel. En hvað með sögurnar sem enda vel, eða ganga vel? Hvernig eru þær sögur og hvar er þær að finna?

Allt í kringum okkur eru fallegar sögur um fólk nær saman og eyðir lífinu saman í gegnum súrt og sætt. Það eru sögurnar sem var ákveðið að draga fram í dagsljósið, raunverulegar ástarsögur – og miðla þeim í leikverki. Það var byrjað á því að safna sögum um sambandsupphaf hjá hjónum/pörum, hvernig ferðalagið í gegnum lífið hefur verið og hvað þau telji að framtíðin beri í skauti sér. Í leikverkinu er farið í ferðalag í gegnum tímann og ástina með sögum frá ömmum og öfum yfir í ungt fólk í dag sem er að hefja lífið saman.

Leikhópurinn Artik hefur í haust safnað saman raunverulegum ástarsögum para víða af norðausturland og unnið úr þeim leikverkið Elsku - Ástarsögur Norðlendinga. Handritið er unnið orðrétt upp úr viðtölum sem tekin voru við pörin og einnig er tónlist nýtt til að teikna sögurnar upp. Þetta er því hreinræktuð heimildarsýning sprottin upp úr okkar umhverfi á norðurhjara veraldar. Frá nágrönnum þínum, frænkum, frændum, mömmu, pabba, ömmu, afa, systkinum – eða jafnvel þín eigin saga.

Forveri verkefnisins, Elska  - ástarsögur Þingeyinga, var unnið af Jennýju Láru Arnórsdóttur árið 2013, með styrk frá Aftur heim, verkefni Menningarráðs Eyþings. Það verkefni var einungis unnið af henni sjálfri og var því mjög smátt í sniðum. Engu að síður fékk það mjög góð viðbrögð, bæði fyrir norðan sem og í höfuðborginni, og var Jenný hvött til að halda áfram að þróa það og bæta við samstarfsaðilum. Þá fékk Jenný til liðs við sig Agnesi Wild leikstjóra og leikarann Jóhann Axel Ingólfsson, sem mun einnig sjá um tónlistina. Saman hafa þau að þróað verkefnið, rætt við fleiri viðmælendur á norðausturlandi og auðgað umgjörðina. Því er um algerlega sjálfstætt framhald að ræða.

 

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra styrkti verkefnið.

 

Handrit: Jenný Lára Arnórsdóttir, Jóhann Axel Ingólfsson og Agnes Wild

Leikstjórn: Agnes Wild

Leikararar: Jenný Lára Arnórsdóttir & Jóhann Axel Ingólfsson

Leikmynd og búningar: Eva Björg Harðardóttir

Ljósmyndir: Daníel Starrason

Grafísk hönnun: Vaiva Straukaite