Fara í efni
Dags Tími
17 .okt '15 20:00
Verð: 7900

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands gengur inn í heim þungarokkssveitarinnar DIMMU og ljáir honum nýja vídd. Julian Kershaw, sem er heimsþekktur útsetjari frá Englandi, mun taka þátt í verkefninu með Dimmu. Hann hefur nýlega unnið útsetningar fyrir sjálfan Sir Paul McCartney, Richard Ashcroft og Elvis Costello. Þetta verður grjóthörð og töfrandi rokksýning með brellum og brögðum í hljóði og ljósum. Ray Gwilliams sem hefur gert videólistaverk fyrir Sigur Rós mun hanna sjónræna hluta sýningarinnar. Lögin Ljósbrá, Ég brenn, Þungur kross og öll hin þekktustu lög Dimmu munu hljóma í Hofi í nýjum og spennandi rokksinfónískum útsetningum þann 17. október. Ekki bara það, Sinfónían og Dimma ætla að leggja land undir fót þann 31. október og endurtaka sýninguna í Eldborgarsal Hörpu.

Svona sinfóníutónleika hefur þú ekki séð áður.

DIMMA og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í samstarfi við Menningarhúsin Hof og Hörpu. 

Uppselt er á tónleikana klukkan 20 en örfáir miðar lausir á tónleikana klukkan 23.