Fara í efni
Dags Tími
19 .sep '15 20:00
20 .sep '15
21 .sep '15
22 .sep '15
23 .sep '15
24 .sep '15
25 .sep '15
26 .sep '15
27 .sep '15
28 .sep '15
29 .sep '15
30 .sep '15
01 .okt '15
02 .okt '15
03 .okt '15
04 .okt '15
05 .okt '15
06 .okt '15
07 .okt '15
08 .okt '15
09 .okt '15
10 .okt '15
11 .okt '15
12 .okt '15
13 .okt '15
14 .okt '15
15 .okt '15
16 .okt '15
17 .okt '15
18 .okt '15
Verð: 4900

ATH - aðeins ein sýning eftir, laugardaginn 17. október.

500 kr. af hverjum seldum miða renna í söfnun fyrir nýju ómskoðunartæki fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri.

 

Við megum ekki gleyma ábyrgðinni sem fylgir því að vera manneskja

 

Nú eru 70 ár liðin frá því að útrýmingarbúðir nasista voru frelsaðar af bandamönnum í lok seinni heimsstyrjaldarinnar árið 1945. Þau voðaverk og sá hryllingur sem í kjölfarið kom fram í dagsljósið vakti óhug í heiminum öllum og enn í dag er okkur ómögulegt að skilja hugsunina sem lá að baki þessum iðnvæddustu fjöldamorðum mannkynssögunnar. Bók Garðars Sverrissonar og Leifs Muller er mörgum minnisstæð.  Hún segir frá lífshlaupi Leifs sem ólst upp í Reykjavík en hélt sem ungur maður til Noregs í nám. Þegar nasistar hernámu Noreg var Leifur svikinn í hendur Gestapó og endaði í Þýskalandi Hitlers í Sachsenhausen, alræmdum þrælkunar- og útrýmingarbúðum nasista. Þetta er einstök, hugrökk og hispurslaus saga. Hún segir frá grimmilegum örlögum eins manns en hún er einnig frásögn af viðvarandi meini í samfélagi manna. Meini sem getur aftur náð að valda óbærilegum hryllingi en einungis ef við leyfum okkur að gleyma ábyrgðinni sem fylgir því að vera manneskja.

 

Býr Íslendingur hér? er 315. sviðsetning Leikfélags Akureyrar.

Leikgerð: Þórarinn Eyfjörð
Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson
Tónlist: Davíð Þór Jónsson
Leikmynd og búningar: Íris Eggertsdóttir
Lýsing: Þóroddur Ingvarsson
Leikarar: Arnar Jónsson og Benedikt Karl Gröndal