Fara í efni
Dags Tími
31 .mar '17 20:00
01 .apr '17
02 .apr '17
03 .apr '17
04 .apr '17
05 .apr '17
06 .apr '17
07 .apr '17
08 .apr '17
09 .apr '17
10 .apr '17
11 .apr '17
12 .apr '17
13 .apr '17
14 .apr '17
15 .apr '17
16 .apr '17
17 .apr '17
18 .apr '17
19 .apr '17
20 .apr '17
21 .apr '17
22 .apr '17
23 .apr '17
24 .apr '17
25 .apr '17
26 .apr '17
27 .apr '17
28 .apr '17
29 .apr '17

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri kynnir hinn margverðlaunaða söngleik Anný sem byggður er á sögunni um munaðarleysingjann Anný.

 

Sagan gerist á fjórða áratug síðustu aldar og fjallar um 11 ára stúlku sem býr við hrörlegar aðstæður á munaðarleysingjaheimili í New York.

Í von um að sameinast foreldrum sínum á ný dregst hún út í skemmtilega atburðarrás og  breiðir um leið út gleði og hlýju í kreppuhrjáðri New York borg.

 

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri hefur undanfarin ár sett upp metnaðarfullar leiksýningar sem hafa slegið hvert aðsóknarmetið á fætur öðru. Föngulegur hópur menntskælinga hefur lagt allt sitt í að láta sýninguna verða að veruleika.

 

Leikstjóri er Hera Fjord, en Hera útskrifaðist árið 2015 frá Kogan Academy of Dramatic Arts í London.

 

Við hlökkum til að sjá þig í Samkomuhúsinu á sýningu sem lætur engan ósnortinn.