Fara í efni
Dags Tími
04 .feb '17 20:00

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og reggíhljómsveitin Amabadama koma saman fram á tónleikum í Hamraborg þar sem allir múrar milli tónlistartegunda eru felldir. Fordómalaus skemmtun með reggí og rondó, barrokki og róli með þeim Sölku Sól, Gnúsa og Steinunni Jóns í broddi fylkingar. 

 

Rugga, rugga, rugga, því ég(?) vil reggí, reggí, reggí í 

líkamann, jaman, aftan í og að framan.

Við erum Amabadaman, hristum okkur saman! 

 

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er með ferskan nútímalegan stíl. Sveitin leikur inn á kvikmyndir og hljómplötur, spilar með tónlistarmönnum úr öllum geirum tónlistarflórunnar og heldur háklassíska sinfóníutónleika þess á milli. Hún hefur átt í samstarfi við Árstíðir, Todmobile, Dimmu, Pollapönk, Steve Hackett ( úr Genesis), Ólaf Arnalds, Eivöru Pálsdóttur, Gretu Salóme og Dúndurfréttir svo eitthvað sé nefnt. Nú vinnur hún með einni vinsælustu hljómsveit Íslands, AMABADAMA.

 

Reggíhljómsveitina Amabadama skipa þau Gnúsi Yones, Salka Sól, Steinunn Jóns, Andreds, Björgvin, Ellert, Hannes, Höskuldur og Ingólfur. Hljómsveitin hefur verið á flugi síðan lagið Hossa hossa kom út árið 2014. Platan sem fylgdi í kjölfarið sló í gegn, enda náðu fjögur lög af henni fyrstu sætum vinsældarlistanna. Árið 2015 fékk hljómsveitin Íslensku tónlistarverðlaunin sem nýliðar ársins, en hún þykir sérstaklega skemmtileg á tónleikum þar sem gleði, kraftur og húmor ráða ríkjum.