Öskudagurinn í Hofi
Akureyri Gott Talent
Á öskudaginn blása Menningarfélag Akureyrar og N4 til hæfileikakeppni í Hofi.
Keppnin far fram á milli 12.30 og 14.00 í Hamraborg, stóra sviðinu í Hofi. Hverjum sem er, er frjálst að taka þátt eða koma í salinn til að horfa á. Skráning í keppnina hefst fyrr um daginn, klukkan 8.00 í Hofi.
Sigurvegarar fá veglega vinninga frá : Borgarbíói, Bryggjunni, Hamborgarafabrikkunni, Hlíðarfjalli, Menningarfélagi Akureyrar, Skautahöllinni og fleirum.
Dómarar eru Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Píla pína og "Bubi Morthens".
Allir keppendur fá glaðning að atriði loknu.
Þess má geta að sigurvegarar síðasta öskudags - Akureyri Gott Talent 2015 - tóku þátt í uppsetningu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á Ávaxtakörfunni fyrr í haust.