Fara í efni

Starfsnemi hjá Leikfélagi Akureyrar

Hekla Aðalsteinsdóttir 2. árs nemi á sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands hefur verið við starfsnám hjá leiklistarsviði MAk frá 25.ágúst. Hún vann við undirbúning og tók þátt í FEN og Play Akureyri. Hennar megin vinna hefur verið sem dramatúrg við sviðsetningu Leikfélags Akureyrar á nýju íslensku leikriti "Þetta er grín, án djóks" sem frumsýnt verður þann 22. október í Hamraborg. 

Það er fengur fyrir MAk og sérstaklega Leiklistarsviðið að fá hingað til Akureyrar unga og upprennandi sviðshöfunda. 

Hekla lýkur starfsnámi sínu nú í október. 

 

Til baka