Fara í efni

Opnun ljósmyndasýningarinnar ÍSLAND - litir og form

Listakonan Hafdís Bennett opnar ljósmyndasýningu sína ÍSLAND - litir og form í Hamragili föstudaginn 13. maí kl. 17.
Sýning hennar samanstendur af nærmyndum af íslensku landslagi sem sýna vel mynstur og sérkennileg form sem þar leynast. Hafdís er listakona sem býr og starfar í London. Ljósmyndasýning hennar hefur meðal annars verið sýnd í sendiráði Íslands í London, Kópavogskirkju og Leifsstöð. Ljósmyndirnar munu prýða veggi Hamragils í sumar fram að Akureyrarvöku.

Á sama tíma í Leyningi sýna söfn og sýningar í Eyjafirði gripi sem eru einkennandi fyrir hvert safn/sýningu. Tilgangurinn er að kynna fjölbreytni eyfirskra safna og laða ferðafólk til að kynnast menningu okkar í gegnum heimsókn á söfn og sýningar.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Til baka