Fara í efni

Framkvæmdastjóri lætur af störfum

Gunnar Ingi Gunnsteinsson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar (MAk) frá og með 1. desember nk., af persónulegum ástæðum með samkomulagi við stjórn. Staða framkvæmdastjóra verður auglýst laus til umsóknar á næstu dögum. Gunnar er fyrsti framkvæmdastjóri MAk, en félagið tók við rekstri Leikfélags Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Menningarhússins Hofs um síðustu áramót. Undir forystu Gunnars hefur MAk náð góðum árangri í samrekstri félaganna þriggja og aukið umsvif þeirra. Stjórn MAk þakkar Gunnari gifturíkt samstarf og óskar honum velfarnaðar. 

Til baka