Fara í efni

Lífríki Norðurslóða í gegnum linsuna

Jiannan Wong
Jiannan Wong

Ljósmyndasýningin „Lífríki Norðurslóða í gegnum linsuna“ verður opnuð næstkomandi föstudag 31. júlí fyrir utan Menningarhúsið Hof kl 14:00. Ljósmyndasýningin samanstendur af myndum víðsvegar frá norðurslóðum og sýnir vinningsmyndir úr ljósmyndakeppni sem CAFF skrifstofan á Íslandi, vinnuhópur Norðurskautsráðsins, hefur staðið fyrir síðastliðið ár.

Á sýningunni má einnig sjá megin niðurstöður úr skýrslu er nefnist Lífríki Norðurslóða (Arctic Biodviersity Assessment) sem er fyrsta heildstæða mat á lífríki norðurslóða. Að skýrslunni koma yfir 250 vísindamenn víðsvegar að en starfinu var stýrt frá Akureyri.

Opnun sýningarinnar er í samstarfi við öflugan kjarna stofnana og fyrirtækja sem koma að norðurslóðamálum á Akureyri auk þess sem ljósmyndakeppnin sjálf naut stuðnings fjölda aðila sem láta sig málið varða.

  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri mun opna sýninguna
  • Embla Eir Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Norðuslóðanets Íslands mun segja gestum frá því öfluga norðurslóðastarfi sem á sér stað á Akureyri
  • Kári Fannar Lárusson, verkefnastjóri hjá CAFF, mun segja nokkur orð um starfsemi CAFF, hvers vegna ráðist var í að halda ljósmyndakeppni um norðurslóðir og fjalla um söguna á bakvið valdar myndir.
Til baka