Fara í efni

Menningarsumarið í Hofi

Fjölbreytt dagskrá á menningarsumrinu í Hofi
Fjölbreytt dagskrá á menningarsumrinu í Hofi

Menningarfélag Akureyrar (MAk) hefur sett saman metnaðarfulla menningardagskrá fyrir sumarið. Gert er ráð fyrir uppákomum nær alla daga í sumar og fara þær fram í Menningarhúsinu Hofi klukkan 14 og 20 á daginn. Dagskráin ber yfirskriftina Menningarsumarið í Hofi eða Summer Events in Hof og er í senn ætluð heimamönnum sem erlendu og innlendu ferðafólki.

Menningarsumarið í Hofi hefst annað kvöld með tónleikum Roope Gröndahl píanóleikara og Ara Þórs Vilhjálmssonar fiðluleikara. Tónleikar þeirra bera nafnið Karlar fyrir konur og eru þeir tileinkaðir íslenskum konum á þessum merkisdegi 100 ára kosningaafmælis.

Á föstudaginn eftir viku verður frumsýndur nýr gaman- einleikur sem heitir Let´s talk Arctic. Benedikt Karl Gröndal fer með öll hlutverk þeirrar sýningar og bregður sér meðal annars í gervi Helga Magra og Þórunnar Hyrnu, Jóns Sigurðssonar og annarra forforeldra okkar. Sýningin fer fram á ensku og verður flutt fimm sinnum í viku í allt sumar.

Þá eru á dagskránni margvíslegir tónleikar sem spanna allt frá íslenskum tvísöng til klassískra verka auk þess sem boðið er upp á dillandi djass og þungt rokk. Það ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Listamennirnir eru heldur ekki af verri endanum og hlökkum við til að taka á móti Eyþóri Inga, Andreu Gylfa, Sigurði Flosasyni, Valgerði Guðnadóttur, félögum úr Kvæðamannafélaginu Gefjuni og öllum hinum.  

Til baka