Fara í efni

Katrín Mist tilnefnd til Grímunnar!

Tilnefningar til Grímunnar 2016, íslensku sviðslistarverðlaunanna, voru kynntar á dögunum. Katrín Mist Haraldsdóttir hlaut tilnefningu til Grímunnar fyrir dans- og sviðshreyfingar í  ævintýrasöngleiknum Pílu Pínu. Katrín er leikkona,  dansari og eigandi Dansstudio Alice á Akureyri. Það er mikill heiður að hljóta tilnefningu og óskum við henni innilega til hamingju með hana.

 Sviðssetning Leikfélags Akureyrar á Pílu Pínu var margrómuð og vel sótt, en fullt hús var á sýningunum níu. Hátt í fimm þúsund áhorfendur, á öllum aldri, nutu þess að upplifa ævintýrið um Pílu, litlu músina sem kenndi okkur að heimurinn er betri en við höldum. Píla pína var stórt verkefni hvort sem litið er til lifandi tónlistar eða glæsilegrar umgjarðar, í formi leikmyndar og búninga, að ótöldum frábærum leik og söng. Um 100 manns kom að uppsetningunni m.a. 10 leikarar, þar af 4 ungmenni, 10 manna hljómsveit og barnakór. Verkefnið var skínandi vitnisburður um samtakamátt Menningarfélags Akureyrar og ber samstarfi  Leikfélags Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Menningarhússins Hofs afar gott vitni. Tilnefning Katrínar til Grímunnar ber hennar framlagi til uppfærslunnar gott vitni. 

Gaman er að segja frá því að sýningin fékk afar góða dóma og gagnrýnendur voru sammála um að hún væri metnaðarfull og vel heppnuð auk þess að vera ljúf og falleg. Gagnrýnandi Vísis, Sigríður Jónsdóttir, gaf sýningunni fjórar stjörnur af fimm og sagði hana vera hugljúfa og einlæga. Tinna Stefánsdóttur í Sirkustjaldinu sagði m.a. „ (..) á heildina litið er hér á ferð vel heppnuð sýning, sjónrænt sælgæti með boðskap sem jafnmikið erindi núna og fyrir 40 árum síðan“. 

 

 

Til baka