Fara í efni

HNOTUBRJÓTURINN Í HOFI Í KVÖLD

Sankti Pétursborgar Hátíðarballettinn og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands frumflytja Hnotubrjótinn eftir Tchaikovsky í Menningarhúsinu Hofi í kvöld, þriðjudaginn 22. nóvember,  kl. 20.

Sýningin seldist upp á augabragði enda einstakur viðburður sem Norðlendingar láta ekki fram hjá sér fara. Jólastemningin ræður ríkjum í Hnotubrjótnum sem er einn vinsælasti ballett sögunnar. Þar leikur tónlist Tchaikovskys stórt hlutverk enda er hún ómissandi hluti af jóladagskrá margra sinfóníuhljómsveita um allan heim. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er það mikið gleðiefni að fá nú tækifæri til að leika verkið í heild undir stjórn rússneska hljómsveitarstjórans Sergey Fedoseev.

Glæsileiki, þokki og léttleiki einkennir Hátíðarballett Pétursborgar enda hafa aðaldansararnir unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna. St Petersburg Festival Ballet var stofnaður til að endurspegla bestu hefðir og anda Pétursborgarballettsins í sýningarferðum um allan heim. Marius Petipa er danshöfundur og um búninga og umgjörð sér Vyacheslav Okunev.

Koma rússneska ballettsins til Akureyrar er möguleg m.a. með menningarbrú Hofs og Hörpu sem reist var á síðasta ári. Markmið hennar er að auka tækifæri listamanna til að sýna list sína bæði fyrir sunnan og norðan og fjölga viðburðum á vegum menningarhúsanna. Stuðningur góðra aðila hér í bæ hafa einnig gert okkur kleift að bjóða uppá þessa einstöku uppfærslu. Fyrir það þökkum við!

Hnotubrjóturinn verður einnig sýndur í Hörpu í Reykjavík dagana 24.-26 nóvember í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands. 

Til baka