Fara í efni

Frábær aðsókn á Pílu pínu!

Menningarfélag Akureyrar hefur nýlega lokið sýningum á ævintýrasöngleiknum Pílu Pínu og viðtökurnar voru hreint út sagt frábærar. Aðsóknin gat vart verið meiri en fullt hús var á sýningunum níu. Hátt í fimm þúsund áhorfendur, á öllum aldri, nutu þess að upplifa ævintýrið um Pílu, litlu músina sem kenndi okkur að heimurinn er betri en við höldum. Píla pína var stórt verkefni hvort sem litið er til lifandi tónlistar eða glæsilegrar umgjarðar, í formi leikmyndar og búninga, að ótöldum frábærum leik og söng. Um 100 manns kom að uppsetningunni m.a. 10 leikarar, þar af 4 ungmenni, 10 manna hljómsveit og barnakór. Uppsetningin á Pílu pínu var skínandi vitnisburður um samtakamátt Menningarfélags Akureyrar og ber samstarfi  Leikfélags Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Menningarhússins Hofs afar gott vitni.  

Sýningin fékk afar góða dóma og gagnrýnendur voru sammála um að sýningin væri metnaðarfull og vel heppnuð auk þess að vera ljúf og falleg. Gagnrýnandi Vísis, Sigríður Jónsdóttir, gaf sýningunni fjórar stjörnur af fimm og sagði hana vera hugljúfa og einlæga. Tinna Stefánsdóttur í Sirkustjaldinu sagði m.a. „  á heildina litið er hér á ferð vel heppnuð sýning, sjónrænt sælgæti með boðskap sem á jafnmikið erindi núna og fyrir 40 árum síðan“.  

 

Gagnrýni sem birst hefur um Pílu pínu:

Hlín Agnarsdóttir í Kastljósi 

Tinna Stefánsdóttir í Sirkustjaldinu 

Sigríður Jónsdóttir á visir.is

 

 

Til baka