Fara í efni

Einsamall sellóleikari

Föstudaginn 5. febrúar heldur Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellóleikari hádegistónleika í Hofi. Þar mun hún leika tvö öndvegisverk fyrir einleiksselló frá fyrri hluta 20. aldar: Serenöðu eftir Hans Werner Henze, en þar eru á ferð níu örstutt tóna-kvöldljóð, og Svítu eftir Gaspar Cassadó, en hann var spænskur sellóleikari, og ber verkið keim af spænskri þjóðlagatónlist.

Steinunn hefur búið í Frakklandi og starfað þar við tónlist um langt skeið. Hún er þó upphaflega Akureyringur, enda var hún nemandi við Tónlistarskólann á Akureyri í æsku. Hún er nú snúin aftur til heimahagana, býr á Akureyri og unir þar vel.

Tónleikarnir eru liður í tónleikaröðinni Föstudagsfreistingum sem Tónlistarfélag Akureyrar stendur fyrir en þar er boðið upp á stutta tónleika í hádeginu á föstudögum. Tónleikagestum gefst einnig kostur á því að panta hádegismat á Bistro 1862 og borða þar að loknum tónleikum. Tónleikarnir eru kl. 12:00 og miðaverð er 2000 kr.

Til baka