Fara í efni

Aukasýning með Gretu Salóme og Alexander Rybak

Þann 17. mars mun vera blásið til stórtónleika í Hofi! Greta Salóme mun ásamt Alexander Rybak, rokkbandi, bakröddum og dönsurum stíga á svið. Það seldist strax upp á fyrri tónleikana og vegna mikillar eftirspurnar hefur aukasýning verið sett í sölu. Þetta er glæsileg tónleikasýning þar sem Greta Salóme og Alexander sýna styrkleika sína á öllum sviðum og óhætt að segja að þarna sé boðið upp á tónlistarupplifun fyrir alla aldurshópa allt frá poppi og rokki, yfir í klassík og flugeldasýningu á fiðlurnar. 

 

Til baka